Námskeiðið "Betri rekstur og þjónusta" í gríðarlega fallegu umhverfi í Vök í apríl. Skemmtilegar umræður og frábærir þátttakendur.
Námskeiðið "Betri rekstur og þjónusta" í gríðarlega fallegu umhverfi í Vök í apríl. Skemmtilegar umræður og frábærir þátttakendur.
Ég hef verið þeirrar ánægju aðnjótandi að vinna með iðnaðarfyrirtækinu Þúsund fjölum í Hafnarfirði síðan síðasta vor. Það var því mjög ánægjulegt þegar Þúsund fjalir fengu tilnefningu til forvarnarverðlauna VÍS. Sjón er sögu ríkari 😊
Lean ráðgjöf hefur unnið með Víkurverk frá árinu 2018 við að auka framleiðni á verkstæði fyrirtækisins. Árangurinn hefur verið ótrúlegur því áður en Lean vinnan hófst kláraði verkstæðið að meðaltali 40 viðgerðum á viku. Það hefur hækkað í 65 viðgerðir á viku sem gerir 62% framleiðniaukning. Geri aðrir betur.
Lean ráðgjöf hefur hjálpað fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum úr ólíkum áttum að stórbæta reksturinn og virkja starfsmannahópinn til góðra verka.
Við hjá Rubix fengum Lean ráðgjöf til að rýna í ferlana hjá fyrirtækinu og samspil þeirra á milli mismunandi deilda. Afrakstur þeirrar vinnu hefur leitt til þess að ferlar eru talsvert skýrari og þar með ábyrgðarsvið þeim tengdum. Aðkoma Lean ráðgjafar að innleiðingunni var í senn fagleg og nytsamleg. Í kjölfar innleiðingarinnar hefur hann fylgt verkefninu eftir til að tryggja að þekkingin og vinnubrögðin eru komin til að vera.
Í maí 2021 byrjaði fyrirtækið að innleiða Lean vinnuskipulag og hérna má sjá smá brot af innleiðingunni og breytingunni sem náðist að innleiða á mettíma.
Ragnheiður framkvæmdastjóri Eignareksturs segir okkur frá árangri þeirra af þjónustu Lean ráðgjafar.
Við Íslendingar erum þekkt fyrir að vera dugleg en er það okkur alltaf til framdráttar?
Við á Leturstofunni ákváðum að taka námskeið hjá honum Guðmundi, sem er eigandi LEAN ráðgjafar, varðandi skipulagningu á vinnudeginum og erum við mjög sáttar með námskeiðið og ráðgjöfina í framhaldinu. Hann er með mjög hvetjandi aðferðir og hefur skipulag okkar batnað svo um munar og yfirsýnin yfir öll þau verkefni sem við höfum yfir vikuna. Við ákváðum því að fá hann til að kynna sig fyrir Vestmannaeyingum því þetta ættu fleiri fyrirtæki klárlega að nýta sér.
Á liðnum mánuðunum hafa fyrirtæki og stofnanir verið að undirbúa styttingu vinnuvikunnar. Þótt nálgunin sé ólík eftir vinnustöðum er markmiðið það sama, að starfsfólk nái að klára verkefni vinnudagsins innan styttri vinnuviku. Þar sem margir starfsmenn eru þegar undir miklu álagi þá er ljóst að starfsfólk og fyrirtæki þurfa í mörgum tilfellum að breyta verklagi til að það sé gerlegt.
Undanfarnar vikur hefur auglýsing frá Lean ráðgjöf hljómað á útvarpsstöðinni K100. Sjón er hinsvegar alltaf sögu ríkari og skemmtilegra að sjá það sem talað er um. Hér er innslag frá Bjarka Harðarsyni, eiganda Bílson verkstæðisins.
Sjáðu með eigin augum dæmi um árangurinn af Lean ráðgjöf.
Við breytinguna styttum við samsettningartímann á hverju hjóli um 50% og viðskiptavinir geta fengið samsett hjól heimsett eftir einungis klst
Námskeiðið Skipuleggðu vinnudaginn með aðferðum Lean er núna orðið aðgengilegt sem vefnámskeið inn á Tækninám.is
Nýr veruleiki blasir við mörgum þessa dagana með auknum tíma heima við, sérstaklega fyrir þá sem ekki hafa tök á að vinna heiman frá. Margir nota tímann til að taka til hendinni og losa sig við óþarfa dót sem hefur safnast fyrir. En hvernig væri að við þyrftum ekki að fara í átök í að taka til og gætum jafnframt stytt tímann sem fer í heimilisverkin, eytt sóun og skipulagt flæðið á heimilum betur fyrir alla á heimilinu?
Breyttir tímar búa til nýjar áskoranir fyrir fyrirtæki, starfsfólk og stjórnendur. Fyrirtæki eru misvel í stakk búin til að mæta þessu. Lean ráðgjöf vill gera sitt til að hjálpa fyrirtækjum að yfirstíga þessar áskoranir. Til að gera það er fjarráðgjöf og fjarfundir ný þjónusta í boði. Ein helstu áskorunin sem deildir og hópar þurfa að mæta er hvernig getum við tryggt samvinnu á sama tíma og starfsmenn eru allir á ólíkum stöðum og þannig tryggt að allir séu að toga í sömu átt
Breyttir tímar kalla á breytta nálgun á þarfir viðskiptavina. Þess vegna mun Lean ráðgjöf núna bjóða upp á fjarnámskeið. Bæði verður boðið upp á opin fjarnámskeið sem verður hægt að skrá sig á og einnig fyrir fyrirtæki og hópa.
Námskeiðið vottaður sérfræðingur í þjónustuupplifun viðskiptavina var haldið í fyrsta skipti á Íslandi dagana 2-4. Mars. 22 einstaklingar frá 13 fyrirækjum luku námskeiðinu og fengu vottun sem sérfræðingar í Þjónustuupplifun viðskiptavina í lok námskeiðsins.
James Dodkins kom í viðtal við Guðmund hjá Lean ráðgjöf og fór á skemmtilegan hátt hvers má vænta í Íslandsför hans í byrjun mars.
Námskeiðið hefur fengið virkilega góða dóma erlendis og er nú haldið í fyrsta skipti á Íslandi. Þátttakendur hljóta alþjóðlega vottun frá “The Academy of Customer Experience and BP Group” Námskeiðið er haldið af James Dodkins, alþjóðlegum fyrirlesara og stjórnanda þáttarins „This week in Customer Experience“ á Amazon Prime. James Dodkins er einn af áhrifamestu sérfræðingum á heimsvísu um þjónustuupplifun viðskiptavina og hefur unnið með mörgum af stærstu fyrirtækjum heims s.s. Adobe, Citibank, Nike, GE, HSBC, IMB, Mercedez, Disney, TNT, Wells Fargo, Xeroz, Verizon o.fl.
Lean aðferðir gegn kulnun í starfi og við styttingu vinnuvikunnar
VIðtal í sídegisþættinum hjá Loga Bergmanni og Sigga Gunnars á K100
Viðtal um hvað Lean ráðgjöf er.
Guðmundur Ingi eigandi Lean ráðgjafar ræðir ávinninginn af Lean innleiðingu og farið er í heimsókn í 3 fyrirtæki sem hafa nám framúrskarandi árangri með því að innleiða Lean.
NÆSTA NÁMSKEIÐ AF "SKIPULEGGÐU VINNUDAGINN MEÐ AÐFERÐUM LEAN" VERÐUR HALDIÐ FIMMTUDAGINN 22. ÁGÚST KL 13.
Til að gera gott fyrirtæki enn betra hefur Kæling verið að innleiða Lean frá því í janúar 2019. Hérna má sjá myndband sem sýnir vegferðina fyrstu 6 mánuðina. Sjón er sögu ríkar.
Afrakstur Kælingar af fyrstu 4 vikum í lean innleiðingu fyrirtækisins.
Hringrás hefur verið að "lean-a" vinnuumhverfið og vinnuferla.
Með aðferðum Lean getum við lært að skipuleggja daginn og stýra áreitinu. Með því aukum við afköst og ljúkum vinnudeginum ánægð með afrakstur dagsins.
Richard Sheridan um sýnilega stjórnun eins og hún reynist best.
Aðferðafræði Lean hefur reynst vel til að skipuleggja vinnuferlana og ná fram hagræði í rekstrinum. Mikil framþróun hefur orðið í framleiðsluferlinu hjá iðnfyrirtækjum sem hafa nýtt sér hugmyndafræðina með góðum árangri.
Hringrás hefur ráðist í miklar breytingar á vinnuferlum og hafa nú endurskipulagt vinnusvæðið sitt með aðferðum Lean að leiðarljósi.
Kistufell fól starfsfólki sínu ábyrgð til að gera umbætur á vinnustaðnum undir leiðsögn Lean ráðgjafar. Reynsla og þekking starfsfólks á vinnustöðum er oftar en ekki gulls ígildi.
Töflur eru áhrifarík leið til að fá yfirsýn yfir verkefnin
Miklar breytingar voru á breytingarverkstæði Arctics Trucks við innleiðingu á Lean
Aðferðir Lean geta skipt sköpum fyrir stargsfólk þegar kemur að vinnusparnaði. Gætir þú tekið Remek til fyrirmyndar?
Lean á 2 sekúndum er áhrifarík leið til að gera einfaldar breyrtingar á degi hverjum. Kynntu þér Lean í þessu stutta myndbandi og yfirfærðu á þinn rekstur.
“Við hjá Hringrás höfum verið að berjast við að ná niður birgðum, auka flæðið og nýta betur plássið á starfstöð okkar í Klettagörðum með misjöfnum árangri. Við leituðum til Guðmundar hjá Lean ráðgjöf sem kynnti okkur fyrir 2seconds lean aðferðafræðinni og hefur hann verið að aðstoða okkur við innleiðinguna. Þessa 3 mánuði sem að við höfum beitt aðferðum lean sjáum við stórstígar framfarir. Magn óuninna birgða er í sögulegu lágmarki og plássleysið sem að við höfum verið að slást við alla tíð er úr nánast úr sögunni. Það er mikið verk óunnið til að við hjá Hringrás getum kallað okkur lean en við erum sannarlega á réttri leið.”